Hrannar Bragi Eyjólfsson sneri aftur á handboltavöllinn með uppeldisfélagi sínu Stjörnunni á föstudagskvöld þegar liðið mætti FH í 1. umferð Olís-deildar karla. Endurkoman kemur nokkuð á óvart enda lék Hrannar Bragi ekkert með Stjörnunni á síðustu leiktíð. Sverrir Eyjólfsson, eldri bróðir Hrannars Braga, er þjálfari Stjörnunnar. Bræðurnir verða því saman í eldlínunni hjá uppeldisfélaginu í vetur, annar inni á vellinum og hinn á hliðarlínunni. Fyrsti leikurinn eftir endurkomuna fór þó ekki eins og Stjörnumenn hefðu kosið. FH byrjaði af miklum krafti í Kaplakrika og komst í 5-1 áður en Stjarnan vann sig betur inn í leikinn. FH leiddi 21-17 í hálfleik og vann að lokum öruggan sjö marka sigur, 38-31. Stjarnan náði að minnka muninn í tvö mörk, 22-20, snemma í síðari hálfleik en FH svaraði af krafti og sigldi sigrinum heim. Ísak Logi Einarsson var markahæstur Stjörnunnar með átta mörk en Jón Þórarinn Þorsteinsson fór mikinn í marki FH og varði 21 skot. Hrannar Bragi komst ekki á blað í markaskorun í endurkomuleiknum. Hrannar Bragi er 33 ára gamall og mun hjálpa liði Stjörnunnar bæði varnar og sóknarlega. Stjarnan fær Hauka í heimsókn í Heklu-höllina á morgun klukkan 20:15 en fyrr um kvöldið fær kvennalið Stjörnunnar, Fram í heimsókn í 2.umferð Olís-deildar kvenna klukkan 18:00.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.