Þetta var lélegt hjá okkur
Egill Bjarni Friðjónsson

Aron Dagur Pálsson, leikmaður HK, var óánægður með frammistöðu liðsins eftir tapið gegn Þór í 2. umferð Olís-deildar karla en Þór vann að lokum fimm marka sigur 36-31. Hann sagði HK-inga hafa átt í miklum vandræðum varnarlega nánast allan leikinn.

„Við vorum ekki nægilega góðir í rauninni og hrós á Þórsarana. Þeir mættu frá fyrstu mínútu með hörku og tóku vel á okkur. Við vissum að svo yrði og það var ekkert sem kom okkur á óvart,“ sagði Aron Dagur.

HK náði á köflum að saxa á forskot Þórs og koma muninum niður í tvö til þrjú mörk, en tókst ekki að fylgja góðu köflunum eftir.

ÞÓR FAGNAÐI FYRSTA SIGRINUM

„Við vorum í brasi varnarlega eiginlega allan leikinn. Þetta var lélegt af okkar hálfu. Við áttum tvo góða kafla þar sem við náðum einhverjum stöðvunum í vörninni og keyrðum á þá og náðum þessu niður í tvö til þrjú mörk. En svo kom eitthvað klikk, við fáum mark í bakið og klaufamistök hjá okkur.“

Þrátt fyrir tapið hefur Aron Dagur engar áhyggjur af framhaldinu hjá HK. Meiðsli hafa sett strik í reikninginn en hann telur liðið búa yfir nægum gæðum.

„Það eru einhver meiðsli en við erum samt með hörkulið og ég hef engar áhyggjur af framhaldinu. Það eru nokkrir hlutir sem við þurfum að koma í gegn hjá okkur og aðeins að fínpússa. Þá hef ég hörkutrú á þessu liði.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top