Danirnir eru ekki að koma hingað til að leika sér
Egill Bjarni Friðjónsson

Oddur Gretarsson, leikmaður Þórs, var að vonum ánægður eftir sigur liðsins gegn HK í Olís-deild karla í gærkvöldi. Þórsarar náðu þar í sín fyrstu stig á tímabilinu og fögnuðu sigri í fyrsta heimaleiknum.

„Það er frábært að vera komnir með tvö stig á töfluna og vinna fyrsta heimaleikinn. Þótt það sé margt sem við getum lagað er mikilvægast af öllu að við náðum í þessi tvö stig,“ sagði Oddur.

Hann var heilt yfir sáttur við frammistöðuna en taldi Þórsara hafa gefið eftir í síðari hálfleik.

„Heilt yfir var þetta fín frammistaða þótt við hefðum viljað gera betur í mörgum atriðum leiksins. Við slökuðum aðeins á í seinni hálfleik en það er flott að fá þessi tvö stig.“

Brynjar Hólm fékk rautt spjald snemma leiks en Oddur segir meiri breidd í leikmannahópi Þórs en áður hafa skipt miklu máli.

„Við misstum Aron Hólm í sumar og Brynjar fékk síðan rautt spjald snemma í þessum leik. Við erum samt með næga breidd til þess að stíga upp og það kemur maður í manns stað. Við erum gríðarlega ánægðir með hópinn.“

Hann er einnig ánægður með innkomu dönsku leikmannanna sem gengu til liðs við Þór fyrir tímabilið.

„Danirnir eru að koma mjög sterkir inn hjá okkur. Þeir eru ekki að koma hingað til að leika sér. Þeir eru að koma hingað til að verða betri og vilja ná langt í handboltanum.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top