Versta byrjun sem ég hef séð hjá handboltaliði
Kristinn Steinn Traustason

Halldór Ingi Óskarsson, línumaður Víkings, var svekktur eftir naumt 26-25 tap gegn KA í Olís-deild karla í kvöld. Víkingar lentu 9-1 undir en unnu sig aftur inn í leikinn og voru hársbreidd frá því að tryggja sér stig á lokasekúndunum.

„Ég er fyrst og fremst svekktur. Ég er svekktur yfir því að annan leikinn í röð þurfum við að byrja með forgjöf gegn okkur. Þetta var örugglega versta byrjun sem ég hef séð hjá handboltaliði,“ sagði Halldór Ingi eftir leik.

KA tók strax öll völd og komst í 9-1. Víkingar neituðu þó að gefast upp, minnkuðu muninn í þrjú mörk fyrir hálfleik og héldu áfram að saxa á forskot Akureyringa eftir hlé.

„Þú getur ekki byrjað verr en að lenda 9-1 undir. Þá er leikurinn nánast tapaður. Við þurfum í raun að tapa leiknum áður en við förum að spila það sem við höfum verið að æfa í tvö ár.“

Víkingar minnkuðu muninn í eitt mark um miðjan síðari hálfleik en KA náði aftur fjögurra marka forskoti. Heimamenn komu enn einu sinni til baka og Sigurður Páll Matthíasson skoraði lokamark leiksins þegar leiktíminn rann út. Halldór Ingi segir frammistöðuna eftir slæmu byrjunina sýna að Víkingar geti vel staðið í sterkum liðum deildarinnar.

„Við sýndum að við kunnum að spila og erum ótrúlega vel drillaðir. Við höfum sýnt það núna og að einhverju leyti gegn Aftureldingu. Við kunnum að spila handbolta og getum alveg byrjað leikina svona.“

Víkingur varð að sætta sig við eins marks tap, 26-25, eftir að KA hafði leitt 12-9 í hálfleik. Víkingur hefur því tapað fyrstu tveimur leikjum liðsins á tímabilinu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top