Hljómar eins og það sé eitthvað ósætti
Jón Gautur Foto

Félagaskipti Magnúsar Dags Jónatanssonar frá KA til ÍBV komu nokkuð bratt upp og voru til umræðu í nýjasta þætti Handkastsins.

Magnús Dagur gekk í raðir Eyjamanna í vikunni, eftir að hafa tekið þátt í fyrsta leik KA í Olís-deild karla á tímabilinu.

„Það hefur verið nóg að gerast á félagaskiptamarkaðnum hjá ÍBV í vikunni. Magnús Dagur Jónatansson er mjög óvænt kominn í ÍBV frá KA. Maður var búinn að heyra af einhverri kerkju í sumar en ég ætla ekki að búa til einhverjar sögur. Ég veit ekkert nákvæmlega um hvað það snerist en það var greinilega eitthvað nægilega mikið til þess að Magnús Dagur er farinn frá KA til Eyja,“ sagði Stymmi klippari.

Hann tók þannig skýrt fram að hann hefði ekki nákvæmar upplýsingar um ástæður félagaskiptanna. Davíð Már Kristinsson sagði tímasetninguna koma sérstaklega á óvart, enda hefði Magnús Dagur fengið hlutverk með KA í upphafi tímabilsins.

„Þetta kemur svolítið á óvart, verð ég að segja. Aðallega er þetta mjög skrítinn tímapunktur. Hann er fyrsti maður inn af bekk hjá KA í fyrsta leiknum, í góðu liði. Mér finnst þetta skrítin tímasetning og þetta kom mjög á óvart. Ég veit ekki alveg hvað mér finnst um þetta,“ sagði Davíð Már.

Hann sagðist þó skilja að hinn tvítugi Magnús Dagur gæti viljað breyta til eftir að hafa búið alla ævi á Akureyri.

„Þó að þetta sé skrítinn tímapunktur þá langar manni kannski, þegar maður er tvítugur og hefur búið alla ævi á Akureyri, í nýja áskorun. Að standa á eigin fótum og fara í nýtt umhverfi. En samt er skrítið að fara frá KA því KA getur gert ágæta hluti í vetur og hann hefði getað tekið stóran þátt í því.“

YFIRGAF UPPELDISFÉLAGIÐ SITT – LANGAÐI AÐ BREYTA TIL

Ásgeir Gunnarsson taldi félagaskiptin bera þess merki að ekki hefði allt verið í góðu milli Magnúsar Dags og KA. Um var að ræða túlkun Ásgeirs en ekki staðfestar upplýsingar um ástæður vistaskiptanna.

„Þetta hljómar hundrað prósent eins og það sé eitthvað ósætti. Það er ekki hægt að lesa neitt annað úr því. Ég hefði haldið að menn myndu frekar vilja fara í stórborgina og vera aðeins þar. Það hefði sennilega verið nóg af liðum sem hefðu viljað fá hann til sín,“ sagði Ásgeir.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top