Viktor Gísli Hallgrímsson, landsliðsmarkvörður og leikmaður Barcelona, og unnusta hans, Jenný Fjóla Ólafsdóttir, eiga von á sínu fyrsta barni. Parið greindi frá gleðitíðindunum á Instagram í kvöld og kvaðst bíða spennt eftir marsmánuði árið 2027. Með færslunni birtu þau sónarmynd ásamt treyju Barcelona. Jenný Fjóla þekkir handboltaheiminn vel en hún lék sjálf handbolta og meðal annars með FH hér á landi. Viktor Gísli, sem er 26 ára, gekk til liðs við spænska stórveldið Barcelona fyrir síðasta tímabil og varð Evrópumeistari með liðinu í júní. Hann framlengdi síðan samning sinn við Börsunga í sumar og er samningsbundinn félaginu til ársins 2029. Handboltinn hefur því verið stór hluti af lífi þeirra beggja en nú tekur við nýtt og spennandi hlutverk hjá parinu þegar fyrsta barn þeirra kemur í heiminn í mars. Handkastið óskar parinu til hamingju.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.