Sveinbjörn Péturs spáir í Akureyrarslaginn
HAPOEL ASHDOD

Markmaðurinn Sveinbjörn Pétursson spáir í spilin fyrir Akureyrarslaginn KA-Þór í Íþróttahúsi KA á miðvikudagskvöldið 16. september kl. 19:00.

Sveinbjörn, sem er 37 ára, er uppalinn á Akureyri og hóf ferilinn með Þór. Hann lék einnig með Akureyri, sameiginlegu liði Þórs og KA, og hér heima auk þess með HK og Stjörnunni.

Bubbi, eins og Sveinbjörn er jafnan kallaður, lék í átta ár alls með liði EHV Aue í 2. deild í Þýskalandi. Þar lék hann fyrst frá 2012 til 2016 og svo frá 2020-2024.

Núna leikur Sveinbjörn í Ísrael með liði Ashdod og er hann fyrsti íslenski handboltamaðurinn sem hefur leikið þar í landi.

Sjáum hvað Sveinbjörn hefur að segja:

"Ég geri fastlega ráð fyrir sigri minna manna í Þorpinu á miðvikudaginn. Þórsarar eru þekktir fyrir að vera stemningsmenn og það er góður andi yfir liðinu í ár.
Ungir strákar plús flottir útlendingar sem að eru að styrkja liðið. Síðan eru eldri Þórsarar sem leiða hópinn og þar fer fyrir liðinu minn gamli félagi Oddur sem mun reynast mikilvægur í þessum leik sem og öllum öðrum. Ég segi 32-28 fyrir mína menn og leyfi síðan öðrum sérfræðingum að tjá sig um andstæðinginn. Áfram Þór"

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top