Guðjón Guðmundsson, Gaupi, telur að Haukar og FH beri af í Olís-deild karla en spáir því að Þór verði spútniklið vetrarins. Guðjón var gestur í nýjasta þætti Handkastsins þar sem farið var yfir 2. umferð Olís-deildanna. Fáir, ef nokkrir, hafa fylgst jafn vel með deildinni undanfarin ár og Gaupi, sem er afar hrifinn af því sem hann hefur séð í upphafi tímabilsins. „Mér finnst Olís-deild karla fara vel af stað. Mér finnst deildin karlamegin betri, ef eitthvað er, en á síðustu leiktíð. Ég sá leiki á undirbúningstímabilinu og mér leist vel á flest öll félögin,“ sagði Gaupi. Hann telur tvö lið skera sig úr en býst við því að fleiri félög geti blandað sér í toppbaráttuna. „Mér finnst tvö lið bera af, Haukar og FH. Síðan koma félög sem narta í hælana á þeim. Framarar gætu orðið sterkir og Valur mun ná vopnum sínum þegar líða fer á tímabilið.“ Gaupi varaði jafnframt við því að afskrifa ÍBV og telur Eyjamenn eiga töluvert inni. „Ég held að menn megi ekki afskrifa Íþróttabandalag Vestmannaeyja. Ég held að þeir verði betri.“ Mesta spennan hjá Gaupa snýr þó að Þórsurum, sem hafa styrkt leikmannahóp sinn verulega fyrir tímabilið. „Það er eitt lið sem ég held að verði spútniklið ársins og valdi því að hlutirnir muni breytast norður á Akureyri: Þór. Þeir hafa styrkt sig gríðarlega vel og ég held að Birkelund hafi gert hárrétta hluti og náð í leikmenn frá Skandinavíu. Ég er hrikalega spenntur fyrir Þórsurum í vetur.“ Það verður heldur betur stórleikur í 3.umferð Olís-deildar karla á miðvikudagskvöldið þegar KA og Þór mætast í nágrannaslag í KA-heimilinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.