Styttist í að Sölvi snúi til baka
Sigurður Ástgeirsson

Sölvi Svavarsson hefur ekkert leikið með Selfossi í upphafi tímabils en hann gæti mögulega snúið í leikmannahóp Selfoss fyrir leik kvöldsins gegn Stjörnunni í 3.umferð Olís-deildarinnar.

Heil umferð fer fram í Olís-deildinni í kvöld en leikur Selfoss og Stjörnunnar hefst klukkan 19:45. Um er að ræða leik milli tveggja liða sem enn eru í leit af sínu fyrstu stigum á tímabilinu.

Sölvi hefur verið að glíma við meiðsli en gæti snúið í leikmannahóp Selfoss í kvöld. Þetta staðfesti Örn Þrastarson þjálfari Selfoss í samtali við Handkastið.

,,Sölvi er að koma úr meiðslum. Hann verður vonandi klár í leikinn í kvöld eða næsta. Hann var orðinn slæmur á nokkrum stöðum eftir álag. Aðallega öxlin og svo einhverjir pústrar sem þurftu bara tíma. Þetta voru engin alvarleg meiðsli," sagði Örn í samtali við Handkastið.

Sölvi var fjórði markahæsti leikmaður Selfoss á síðustu leiktíð með 52 mörk. Það yrði gríðarlega jákvæða fréttir fyrir Selfyssinga ef hann getur spilað með liðinu gegn Stjörnunni í kvöld.


Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top