Sjáðu þegar Bjarki skellur með hnakkann í gólfið – Þetta var viðbjóður
Sævar Jónasson

Bjarki Jóhannsson leikmaður Stjörnunnar varð fyrir alvarlegu broti í fyrri hálfleik í leik Stjörnunnar gegn Selfossi í gærkvöldi sem endaði með jafntefli 34-34 þar sem Sigurður Dan Óskarsson var hetja Garðbæinga en hann varði vítakast frá Tryggva Sigurberg Traustasyni þegar leiktíminn var runninn út en Tryggvi Sigurberg hefði getað tryggt Selfyssingum fyrsta sigur liðsins á tímabilinu.

Bæði lið voru án stiga fyrir leikinn í gær.

Segja mætti að Valdimar Örn Ingvarsson hafi verið stálheppinn að sleppa við brottvísun er hann braut á Bjarka Jóhannssyni í þann mund sem Bjarki skaut að marki Selfyssinga í stöðunni 14-11 fyrir Stjörnuna í fyrri hálfleik.

Hvorki Árni Snær né Þorvar Bjarmi dómarar leiksins virtust sjá brotið né afleiðingarnar því ekkert var dæmt og keyrðu Selfyssingar upp í hraðarupphlaup í kjölfarið.

Stjörnumenn voru allt annað en ánægðir með ákvörðun dómarana. 

Rætt var um atvikið í nýjasta þætti Handkastsins.

,,Valdimar hamrar Bjarka niður sem skellir með hnakkann í gólfið, þetta var viðbjóður. Dómarar leiksins dæmdu ekki neitt, heldur leyfa Selfyssingum að keyra upp í hraðarupphlaup og þar er líka brotið á Selfyssingnum og hann klúðrar skotinu en þeir dæma heldur ekki neitt þar," sagði Stymmi klippari áður en Sérfræðingurinn bætti inn í:

,,Það var eins og þeir hefðu verið eitthvað vankaðir á þessum tímapunkti.”

,,Ég átta mig hreinlega ekki á þessu. Meiri segja lýsandinn á Livey var farinn að kalla eftir rauðu spjaldi. Ef dómarnir hefðu fengið að kíkja í símann og skoða VAR þá hefði þetta verið eldrautt spjald. Rúsínan í pylsuendanum er síðan sú að títtnefndur Valdimar, fiskar vítið í lok leiks sem Selfyssingar hefðu getað tryggt sér sigurinn úr," sagði Stymmi Klippari meðal annars.

En frekar var rætt um dómgæslu í leikjum gærkvöldsins í þættinum en margir vafasamir dómarar litu dagsins ljós í leikjunum í gærkvöldi.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top