Þýska deildin er NBA handboltans
Anke Waelischmiller/SVEN SIMON / SVEN SIMON / dpa Picture-Alliance via AFP

Talant Dujshebaev hefur verið á allra stærsta sviði evrópsks handbolta í áratugi og hefur sterkar skoðanir á þýsku Bundesligunni. Hann segir deildina vera þá bestu í heimi og líkir henni við NBA-deildina í körfubolta.

Dujshebaev var staddur í Þýskalandi til að fylgjast með sonum sínum, Alex Dujshebaev og Daniel Dujshebaev, mætast þegar Gummersbach og Melsungen áttust við fyrr í mánuðnum.

Eftir leikinn var Dujshebaev spurður í þýsku sjónvarpi hvernig það væri að sjá báða syni sína spila í efstu deild Þýskalands. Svarið þróaðist fljótt yfir í mikið lof um Bundesliguna.

„Ég er mjög ánægður með að þeir fái að spila í bestu deild í heimi,“ sagði Dujshebaev samkvæmt Handnews.

„Þetta er eins og NBA, nema fyrir handbolta.“

Dujshebaev þekkir vel til þýska handboltans eftir langan og farsælan feril. Hann lék sjálfur í Þýskalandi með Nettelstedt-Lübbecke og Minden áður en hann varð einn sigursælasti maður evrópsks handbolta, bæði sem leikmaður og síðar þjálfari.

Að hans mati er það stór áfangi fyrir handboltamenn að komast í Bundesliguna og hann hvetur unga leikmenn til að horfa til Þýskalands þegar þeir taka næstu skref á ferlinum.

„Ég segi alltaf að ég hafi verið ótrúlega heppinn í lífinu. Ég fékk sjálfur að spila í bestu deild í heimi,“ sagði Dujshebaev.

„Ég segi mörgum ungum leikmönnum að þeir ættu seinna meir að reyna að komast til Þýskalands og spila í Bundesligunni. Satt best að segja er þetta allt annar heimur.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top