Rætt var um nágrannaslag KA og Þórs í nýjasta þætti Handkastsins en Þórsarar fögnuðu 35-31 sigri í KA-heimilinu í 3. umferð Olís-deildar karla á miðvikudagskvöld. KA byrjaði leikinn af miklum krafti og komst í 5-1 eftir aðeins sjö mínútur. Þórsarar svöruðu hins vegar vel, jöfnuðu í 9-9 og komust í kjölfarið yfir. Jafnt var í hálfleik, 16-16. Mikið jafnræði var með liðunum í síðari hálfleik. Þór komst í 21-18 en KA svaraði og þegar tæpar fjórar mínútur voru eftir var staðan 31-31. Þar reyndust Þórsarar sterkari. Þeir skoruðu síðustu fjögur mörk leiksins og fögnuðu 35-31 sigri á heimavelli erkifjendanna. Frammistaða liðanna var tekin til umræðu í Handkastinu og Björn Ingi Jónsson, gestur þáttarins, var töluvert hrifnari af því sem hann hefur séð frá Þórsurum. „Ef við berum KA og Þór saman þá er ég miklu hrifnari af Þórsurunum. Mér finnst þetta rosalega takmarkað hjá KA, þetta snýst allt um hvað Bjarni Ófeigur sé frábær skytta,“ sagði Björn Ingi. Stymmi klippari tók undir að ákveðnu leyti og sagðist sakna þess sem einkenndi KA-liðið á síðustu leiktíð. „Allt sem var gott hjá KA í fyrra, baráttan og stemningin, mér finnst það hafa dalað. Við höfum talað um það áður að við hefðum áhyggjur af því að þeir héldu að þeir væru orðnir of góðir. Í fyrra mættu þeir, unnu grunnvinnuna vel og börðust eins og Guðjón Þórðarson myndi orða það.“ Sérfræðingurinn benti þó á að breytt staða KA eftir gott gengi á síðustu leiktíð gæti einnig haft áhrif. „Já, eða að önnur lið eru farin að taka KA alvarlega. Kannski voru ekkert mörg lið að taka KA alvarlega í upphafi tímabils í fyrra og síðan fá þeir Dag Gautason og Ágúst Elí og núna búnir að bæta við sig Degi Árna Heimissyni. Auðvitað sárvantar þá Giorgi.“ Stymmi klippari benti þá á að staðan væri langt frá því að vera alslæm hjá KA. Liðið er með fjögur stig eftir fyrstu þrjá leikina og var í hörkuleik við Þór allt þar til gestirnir stungu af á lokamínútunum. „Þetta er ekkert alslæmt.“ Sérfræðingurinn sagði hins vegar að gera yrði meiri kröfur til KA miðað við væntingarnar fyrir tímabilið. „Nei, en þeir voru samt að tapa á heimavelli gegn Þór. KA er með miklu dýrara lið en Þór og það eru miklu meiri væntingar hjá KA fyrir tímabilið en hjá Þór. KA vinnur Víking í 2. umferðinni með einu marki.“ KA og Þór eru bæði með fjögur stig eftir fyrstu þrjár umferðir Olís-deildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.