Andri Már Rúnarsson hefur ekkert leikið með HC Erlangen á tímabilinu vegna þrálátra meiðsla á lífbeins- og nárasvæðinu. Meiðslin hafa haldið Andra Má frá keppni í tæpt hálft ár en þau voru að hans sögn að einhverju leyti ranglega greind í upphafi. Hann var sendur til mismunandi lækna og sérfræðinga og fór meðal annars í endajaxlatöku í sumar í tengslum við leitina að lausn á vandanum. „Ég er ennþá að glíma við sömu meiðsli og í lok síðasta tímabils. Meiðslin voru því miður að vissu leyti ranglega greind í byrjun og ég var sendur til mismunandi lækna og sérfræðinga til að reyna að finna út úr þessu,“ sagði Andri Már í samtali við Handkastið. Það var ekki fyrr en undir lok síðasta tímabils sem betur fór að skýrast hversu alvarleg meiðslin væru. „Síðustu vikurnar fyrir síðasta leik tímabilsins hitti ég annan sjúkraþjálfara og lækni sem ég er enn að vinna með í dag. Þá kom í ljós að meiðslin sem ég er að glíma við voru mun alvarlegri en vonast hafði verið til.“ Ekki hefur fengist nákvæm greining á meiðslunum þar sem þau eru ekki af hefðbundnum toga. „Það hefur aldrei komið nákvæm greining á meiðslin þar sem þau eru ekki jafn augljós og hin klassísku meiðsli. Þetta eru verkir og óþægindi á svæði lífbeinsins og nárans.“ Andri Már hefur verið í stöðugri endurhæfingu frá byrjun júní og telur sig nú vera farinn að nálgast endurkomu á handboltavöllinn. „Það er búið að prófa nokkrar leiðir til að finna nákvæmlega út úr þessu með misgóðum árangri. Ég er búinn að vinna mikið með sjúkraþjálfaranum og verið í stöðugri endurhæfingu hjá henni síðan í byrjun júní.“ „Staðan á mér í dag er bara fín. Það er enn stundum mikill munur á milli daga og bæði góðir og slæmir dagar, en mér líður núna eins og ég sé á lokametrunum í endurhæfingunni.“ Vonir stóðu upphaflega til þess að Andri Már yrði aðeins frá keppni í nokkrar vikur. Fjarveran hefur hins vegar orðið mun lengri og tekið verulega á. „Það var vonast til þess í byrjun að meiðslin væru ekki það alvarleg og þetta myndi bara taka nokkrar vikur. Núna eru hins vegar næstum sex mánuðir síðan ég spilaði síðast handboltaleik og það hefur tekið mikið á.“ „Á hinn bóginn hefur maður lært heilmikið á þessum tíma. Það kitlar fáránlega mikið í puttana að komast aftur inn á völlinn,“ sagði Andri Már.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.