Viktor Sigurðsson, leikmaður Fram, verður frá keppni næstu fjórar til fimm vikurnar vegna handarbrots sem hann varð fyrir í upphafi tímabilsins. Viktor varð fyrir því óláni að handarbrotna eftir aðeins tíu mínútna leik gegn Þór í fyrstu umferð Olís-deildar karla. Hann hefur ekki leikið síðan og missti meðal annars af sigri Fram gegn Val í annarri umferðinni og var ekki með liðinu í tapi gegn ÍBV í síðustu viku. Viktor fór í frekari skoðun vegna meiðslanna og Einar Jónsson, þjálfari Fram, staðfesti í samtali við Handkastið að niðurstaðan væri sú að gera mætti ráð fyrir fjögurra til fimm vikna fjarveru. Viktor þarf því að fylgjast með næstu leikjum Fram af hliðarlínunni áður en hann getur snúið aftur inn á völlinn. Fram heimsækir Stjörnuna í 4.umferð Olís-deildar karla næstkomandi fimmtudag klukkan 18:30.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.