Selfyssingurinn og hægri hornamaðurinn Sæþór Atlason hefur farið frábærlega af stað með Gróttu í Grill 66 deildinni í fyrstu 2 leikjum tímabilsins. Sæþór hefur sett 24 mörk í fyrstu 2 leikjunum sem verður að teljast býsna gott fyrir hornamann. Sæþór sagði í viðtali við Handkastið síðastliðið vor að hann væri að öllum líkindum að fara að flytja á Selfoss og ætlaði sér að ganga til liðs við Selfoss en af því varð svo ekki. Við heyrðum í honum og fengum hann til að segja okkur hvað breyttist með þá ákvörðun og tímabilið framundan hjá Gróttu. "Ég ákvað að fara ekki aftur á Selfoss eftir að hafa farið ítarlega yfir hlutina með kærustunni. Við hefðum bæði þurft að skipta um vinnu og að fara úr góðri íbúð sem við erum í þannig að það var hagstæðast fyrir okkur að vera áfram í bænum" "Fyrir tímabilið framundan er ég mjög bjartsýnn að við erum að fara gera frábæra hluti. Við áttum mjög gott og árangursríkt undirbúningstímabil sem að endaði á Tenerife. Andri er að sjálfsögðu með rosalega mikla reynslu og hefur vitað að sú ferð myndi þjappa hópnum verulega vel saman, sérstaklega nýju strákunum. Ég hef fulla trú á þessu liði og þjálfarateyminu og við höfum byrjað vel fyrstu leikina, ég sé enga ástæðu afhverju við ættum að hægja á okkur á næstunni" sagði Selfyssingurinn og hornamaðurinn eldfljóti að lokum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.