Baur hefur enn mesta trú á Magdeburg
Photo by Sascha Klahn / dpa Picture-Alliance via AFP

SC Magdeburg tapaði sínum fyrstu stigum á tímabilinu þegar liðið beið lægri hlut gegn MT Melsungen í fimmtu umferð þýsku Bundesligunnar. THW Kiel og SG Flensburg-Handewitt eru nú einu taplausu liðin en Markus Baur telur tapið ekki breyta stöðu Magdeburg í toppbaráttunni.

Magdeburg hefur verið í fremstu röð undanfarin ár en liðið fékk óvæntan skell gegn Melsungen. Markus Baur, heimsmeistari með Þýskalandi árið 2007 og fyrrum leikstjórnandi, telur þó allt of snemmt að draga stórar ályktanir af einu tapi.

„SCM er enn klárlega líklegasta liðið, þótt þeir hafi nú tapað einum leik. Þeir eru með frábæran leikmannahóp og þjálfara sem er að vinna stórkostlegt starf,“ sagði Baur og hrósaði Bennet Wiegert.

Baur telur mikla reynslu Magdeburg af stórum og jöfnum leikjum geta reynst liðinu mikilvæg þegar líður á tímabilið.

„Þeir vita nákvæmlega hvernig svona leikir þróast. Og það eru oft þessir leikir sem ráða úrslitum um titla.“

Það eru þó risarnir í THW Kiel og SG Flensburg-Handewitt sem sitja í efstu sætunum eftir fyrstu fimm umferðirnar. Bæði lið eru enn taplaus og mætast einmitt í Norðurslagnum á laugardag.

„Ég held að bæði lið muni spila stórt hlutverk á þessu tímabili. Hvort þau verði á toppnum alveg til loka kemur í ljós,“ sagði Baur.

Baur hefur sérstaklega mikla trú á Kiel og telur breytingarnar sem gerðar voru á leikmannahópnum hafa styrkt liðið.

„Kiel gerði breytingar á hópnum sem voru mjög skynsamlegar. Þetta voru breytingar sem Filip Jicha, fyrrverandi þjálfari, hafði einnig komið af stað. Börge Lund er því með sterkari leikmannahóp.“

Baur telur einnig Flensburg og Melsungen hafa burði til að vera í baráttunni á toppnum.

Baur er hins vegar efins um að Füchse Berlin geti haldið sér í toppbaráttunni út allt tímabilið eftir brotthvarf Lasse Andersson og Dejan Milosavljev.

„Ég held að Berlín verði ekki á toppnum alveg til loka tímabilsins,“ sagði Baur.

Fyrstu fimm umferðirnar hafa því þegar boðið upp á óvænt úrslit og nú bíður stórleikur Kiel og Flensburg um næstu helgi þar sem tvö síðustu taplausu lið deildarinnar eigast við.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top