
Haukar og FH mætast í kvöld klukkan 19:30 og nágrannaslag af bestu gerð þegar liðin mætast í 4.umferð Olís-deildar karla. Sigurður Jefferson Guarino, sem gekk til liðs við Hauka frá HK í sumar, mun þar upplifa Hafnarfjarðarslaginn í fyrsta sinn og segir mikilvægi leiksins alls ekki hafa farið framhjá sér. Haukar hafa byrjað tímabilið vel og Sigurður segir liðið hafa sett sér ákveðinn staðal strax frá upphafi. Góða byrjunin gefi liðinu sjálfstraust fyrir stórleikinn gegn FH. „Klárlega. Við erum búnir að leggja ákveðinn standard fyrir okkur og að mæta í hvern einasta leik og gefa ekkert eftir. Sjálfstraustið kemur svolítið frá því að vera með mjög skýra stefnu sem allir trúa á og meðvitund um þau gæði sem búa innan liðsins.“ Sigurður gekk til liðs við Hauka frá HK í sumar og er mjög ánægður með fyrstu mánuðina á Ásvöllum. „Ég hefði eiginlega ekki getað beðið um betri móttökur. Ég er mjög ánægður með allt hérna.“ Þrátt fyrir að hafa aðeins verið Haukamaður í nokkra mánuði hefur Sigurður þegar áttað sig á því hversu stóran sess grannaslagurinn gegn FH skipar. Leikurinn hefur reglulega komið til tals frá því hann mætti til félagsins. „Frá því að ég kom í Hauka hefur þessi leikur ekki farið framhjá manni. Hann berst upp í tal reglulega og það er klárt mál hversu þýðingarmikill hann er. Spennan í loftinu er áþreifanleg.“ Sigurður er því greinilega farinn að finna fyrir eftirvæntingunni og á von á miklum látum þegar liðin mætast. „Bardagi, eldmóður og gríðarleg skemmtun. Ég get ekki beðið eftir þessu.“ Þegar Sigurður er spurður hvort tvö bestu lið landsins séu að fara að mætast á fimmtudaginn svarar hann með skýrum hætti. „Þetta er toppbarátta. Handboltinn í Hafnarfirði er ekkert grín.“ Til þess að Haukar standi uppi sem sigurvegarar telur Sigurður nokkur atriði þurfa að falla með liðinu, þar á meðal stuðninginn úr stúkunni. „Góður undirbúningur, spila með ákefð, þola mótlætið og ekki síst mikinn stuðning frá okkar fólki.“ Leikur FH og Hauka hefst í kvöld klukkan 19:30 en Handkastið gerir upp leikinn í uppgjörsþætti strax að leik loknum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.