Sæþór í tveggja leikja bann
Sævar Jónasson)

Sæþór Örn Garðarson, leikmaður ÍBV B, hefur verið úrskurðaður í tveggja leikja bann eftir útilokun með skýrslu í leik liðsins gegn Herði í Powerade-bikar karla um síðustu helgi.

Dómarar töldu brot Sæþórs sérstaklega hættulega aðgerð. Handknattleiksdeild ÍBV skilaði greinargerð vegna málsins, en aganefnd HSÍ taldi hvorki sjónarmið félagsins né myndbandsupptöku gefa tilefni til að breyta mati dómaranna.

Bannið tekur gildi á hádegi 24. september. Þar með er ljóst að Sæþór missir af leik ÍBV B gegn Þór í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins en dregið var í 16-liða úrslit bikarsins í hádeginu í dag.

Vinni ÍBV B, Þór í 16-liða úrslitunum verður Sæþór einnig í leikbanni í 8-liða úrslitunum og því ljóst að Sæþór getur ekki tekið þátt fyrr en komist ÍBV B í undanúrslit bikarsins.

Brotið má sjá hér að neðan:

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top