Sjáðu hetju vörslu Grétars Ara sem tryggði sigur Hauka gegn FH
Jón Gautur Fótó

Grétar Ari Guðjónsson markvörður Hauka reyndist hetja Haukamanna í sigri liðsins gegn FH í 4.umferð Olís-deildar karla.

Haukar voru fimm mörkum yfir, í stöðunni 35-30 þegar lítið var eftir en FH-ingar skoruðu þá fjögur mörk í röð og fengu tækifæri til að jafna metin í lokasókn sinni, einum manni fleiri.

Aron Pálmarsson, þjálfari FH tók leikhlé og stillti upp í lokasókn liðsins. Logi Geirsson, góðvinur Arons hefði sennilega verið stoltur af félaga sínum í þetta skiptið því FH-ingar fengu dauðafæri en Grétar Ari Guðjónsson sá við skoti, Ómars Darra Sigurgeirssonar og tryggði Haukum sigurinn í leiðinni.

Ómar Darri var markahæstur í liði FH með 10 mörk í leiknum en hann sefur sennilega illa í nótt, þrátt fyrir það.

Umfjöllun um leikinn.

Lokasókn FH má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top