Tvö bestu lið landsins að mætast
J.L.Long)

FH og Haukar mætast í kvöld í sannkölluðum stórleik og ræddu strákarnir í Handkastinu um leikinn í síðasta þætti þeirra.

Flautað verður til leiks klukkan 19:30 í Kaplakrika í kvöld en Haukar eru á toppi deildarinnar með sex stig en FH er í 2.sæti með fimm stig.

Arnar Daði velti fyrir sér hvort þarna væru tvö bestu lið landsins að mætast og tók Styrmir undir þau orð.

,,Eins og staðan er í dag eru þetta tvö bestu liðin en ég myndi alltaf henda Val inn í mixið svona þegar fram líða stundir en eins og spilamennska liðanna hefur verið undanfarið þá myndi ég segja að þarna væru tvö bestu lið landsins að mætast."

Styrmir hélt áfram og taldi að Haukar væru jafnvel skrefi á undan FH eins og staðan væri í dag.

Kristinn Björgúlfsson gestur þáttarins var ekki sammála Styrmir og telur að FH muni klára leik liðanna á fimmtudaginn.

Arnar Daði velti því jafnfram fyrir sér hvort það hafi verið mikil gleði í herbúðum liðanna með Elítu æfingar HSÍ um helgina þar sem FH átti sex fulltrúa og Haukar þrjá.

,,HSÍ æfingarnar kláruðust á laugardaginn svo liðin fá alveg nægan undirbúning en maður veltir fyrir sér í aðdraganda Hafnarfjarðarslag hvort þjálfara vilji ekki hafa leikmenn sína hjá sér á æfingum."

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top