HK vann sinn fyrsta leik á tímabilinu í Olís-deild karla í gær þegar liðið lagði ÍBV með einu marki í mikilli dramatík í Vestmannaeyjum. Sigurmarkið var með ótrúlegri hætti en Færeyingurinn Trúgvi Hávardsson tryggði HK stigin með skoti frá miðju undir lok leiksins. Sjáðu ótrúlegt sigurmark HK í Eyjum Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari HK, var að vonum ánægður með frammistöðu sinna manna og þá sérstaklega sóknarleik liðsins. „Mér fannst leikurinn frábær hjá okkur sóknarlega þar sem ÍBV spilaði þrjár mismunandi varnir á móti okkur og því þurftum við að vera fljótir að aðlagast og breyta til. Sjö á sex gaf okkur ró þegar þeir fóru í 3–3 vörnina og við leystum það frábærlega,“ sagði Halldór Jóhann í samtali við Handkastið. Hann var þó ekki jafn ánægður með leik liðsins hinum megin á vellinum. „Vörn og markvarsla voru undir pari svona heilt yfir en samt betri í seinni hálfleik en þeim fyrri. Margir voru að leggja í púkkið og markaskorunin dreifðist vel. Ég er bara mjög stoltur af strákunum, líka af því að það er ekki auðvelt að koma til Eyja, spila góðan leik og vinna.“ Sigurinn var sá fyrsti hjá HK á tímabilinu og kom því á kærkomnum tíma. Halldór viðurkennir að það geti tekið á leikmenn að bíða eftir fyrsta sigrinum. „Fyrsti sigurinn er alltaf mikilvægur fyrir sálartetrið og það getur tekið á að spila nokkra leiki án sigurs. Mér fannst við ekki góðir í síðustu leikjum og í raun áttum við ekkert skilið úr þeim.“ HK-ingar fengu hins vegar ríkulega umbun fyrir frammistöðuna í Vestmannaeyjum þegar skot Trúgva frá miðju rataði rétta leið. „Við áttum skilið að vinna í gær og unnum okkur kannski inn smá heppni með góðri spilamennsku,“ sagði Halldór Jóhann. HK fær Stjörnuna í heimsókn í lokaleik 5.umferðar Olís-deildar karla á sunnudaginn í næstu viku klukkan 18:00.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.