Oddur ferðaðist ekki suður með Þór
Egill Bjarni Friðjónsson

Oddur Gretarsson er ekki í leikmannahópi Þórs sem mætir Víkingi í 4. umferð Olís-deildar karla í kvöld. Samkvæmt heimildum Handkastsins á Oddur von á barni og gat því ekki ferðast suður með liðinu.

Fjarvera Odds er skarð í sóknarleik Þórs. Hann hefur skorað sjö mörk úr sjö skotum í fyrstu þremur leikjum liðsins á tímabilinu og hefur því nýtt öll færi sín til þessa.

Þór kemur til leiks eftir góðan sigur á nágrönnum sínum í KA í síðustu umferð. Akureyrarliðið getur farið upp í annað sæti deildarinnar með sigri í kvöld, en Víkingar eru enn án stiga eftir fyrstu þrjá leiki sína.

Leikur Víkings og Þórs hefst klukkan 19:00 og verður sýndur í Handboltapassanum og á Livey. Lokaleikur 4. umferðarinnar hefst síðan klukkan 19:30 þegar Valur og KA mætast í Valsheimilinu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top