
Afturelding er með fimm stig eftir fyrstu fjórar umferðir Olís-deildar karla eftir sigur á Selfossi í gær og er í 2.–3. sæti deildarinnar. Afturelding vann leikinn með átta mörkum 42-34. Hrannar Guðmundsson, þjálfari Aftureldingar, var ánægður með frammistöðu sinna manna gegn Selfossi og þá sérstaklega sóknarleik liðsins. „Bara flottur leikur hjá okkur. Sóknarleikurinn var hrikalega góður og við vorum mjög agaðir og beinskeyttir. Varnarleikurinn í fyrri hálfleik var mjög góður þegar við vorum sex á móti sex,“ sagði Hrannar í samtali við Handkastið. Afturelding hefur því náð í fimm stig af átta mögulegum í upphafi tímabils. Hrannar er sáttur við stigasöfnunina þótt hann telji að Mosfellingar hefðu getað verið með enn fleiri stig. „Já, bara flott. Auðvitað hefði ég viljað fá tvö stig heima á móti FH þar sem við fengum tækifæri til þess en heilt yfir er ég bara sáttur.“ Spilamennska Aftureldingar hefur að mati Hrannars verið sveiflukennd á köflum og hann telur liðið eiga töluvert inni. „Þetta hefur verið svona upp og niður. Auðvitað höfum við spilað mjög vel á köflum en einnig dottið niður. Það er klárlega svigrúm til bætinga og við erum að vinna að því á hverjum degi.“ Hrannar segir ekkert sérstakt hafa komið sér á óvart í spilamennsku liðsins á fyrstu vikum tímabilsins. Hann er fyrst og fremst ánægður með hvernig leikmannahópurinn hefur tekið á verkefninu. „Ég er bara ánægður með liðið. Hrikalega flottur hópur. Það hafa allir verið að leggja í púkkið og við erum bara á fínum stað.“ Fjórða umferðin í Olís-deild karla klárast í kvöld með tveimur leikjum. Valur fær KA í heimsókn og stigalausir Víkingar fá Þórsara í heimsókn. Afturelding fer í heimsókn í Úlfarsárdalinn og mætir Fram í næstu umferð á fimmtudaginn í næstu viku.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.