Úkraínska handknattleikssambandið varar við því að það muni „mjög líklega“ þurfa að draga öll lið landsins úr alþjóðlegum handknattleikskeppnum. Ástæðan er gríðarlega erfið fjárhags- og öryggisstaða í landinu. Staðan í úkraínskum handknattleik er orðin afar erfið eftir langvarandi stríðsátök. Handknattleikssamband landsins hefur nú greint frá því að til greina komi að hætta þátttöku liða sinna í alþjóðlegum keppnum. Sambandið segir kostnað við ferðalög hafa aukist gríðarlega auk þess sem mjög erfiðar aðstæður séu við landamæri Úkraínu. Þar geti biðtími orðið allt að 15 klukkustundir og það geri ferðir liða til annarra landa sífellt erfiðari og kostnaðarsamari. „Vegna gríðarlega erfiðrar fjárhags- og öryggisstöðu þarf úkraínska handknattleikssambandið mjög líklega að draga öll lið sín úr alþjóðlegum keppnum,“ segir í yfirlýsingu sambandsins. Ef til þess kemur hyggst sambandið leggja áherslu á að tryggja þátttöku kvennalandsliðsins á Evrópumótinu auk þess að halda áfram með deildarkeppnir innan Úkraínu. „Við munum einbeita okkur að þátttöku kvennalandsliðsins okkar á Evrópumótinu, sem og skipulagningu og áframhaldi landsmótanna.“ Sambandið leggur þó áherslu á að ákvörðunin sé ekki endanleg. Um bráðabirgðaupplýsingar sé að ræða og formlegt bréf verði sent til EHF, IHF og annarra viðeigandi sambanda og stofnana á föstudaginn. Sasha Gladun, framkvæmdastjóri úkraínska handknattleikssambandsins, segir aðstæður orðnar slíkar að sambandið sjái mögulega enga aðra leið. „Því miður, eftir fimm ára stríð, erum við komin í þá stöðu að neyðast til að taka þessa erfiðu ákvörðun.“ Verði af þessu yrði um gríðarlegt högg fyrir úkraínskan handknattleik að ræða, en sambandið mun gefa frekari upplýsingar þegar formlegt erindi hefur verið sent til alþjóðlegu handknattleikssambandanna.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.