Justus Fischer, landsliðsmaður Þýskalands og leikmaður TSV Hannover-Burgdorf, hefur sagt frá heldur óvenjulegri hlið á lífi atvinnumannsins. Óvænt lyfjapróf kostaði hann dýrmætan hálftíma af svefni og Fischer deildi í kjölfarið afar sérstæðu ráði til þeirra sem eiga erfitt með að skila þvagsýni. Fischer og David Späth, markvörður Rhein-Neckar Löwen, halda úti hlaðvarpinu Fischer & Friend þar sem þeir gefa innsýn í daglegt líf atvinnumanna í handbolta. Í nýjasta þættinum ræddu þeir meðal annars um lyfjaeftirlit. Sem þýskir landsliðsmenn þurfa þeir reglulega að gefa þýsku lyfjaeftirlitsstofnuninni NADA upplýsingar um dvalarstað sinn svo hægt sé að framkvæma fyrirvaralaus lyfjapróf. Fischer, sem er 23 ára, rifjaði upp morgun þar sem fulltrúar NADA mættu heldur fyrr en hann hefði kosið. „Ég þurfti að vakna klukkan 6:30 en NADA vakti mig klukkan 6:00. Þeir stálu einfaldlega síðasta hálftímanum frá mér. Þessi hálftími er bara svo mikilvægur fyrir hausinn,“ sagði Fischer. Hann tók þó skýrt fram að hann gerði sér grein fyrir mikilvægi eftirlitsins. „Þetta er mjög skynsamlegt, en klukkan sex á morgnana getur þetta stundum verið svolítið erfitt.“ Lyfjaprófin geta líka skapað annað vandamál. Íþróttamenn þurfa að skila þvagsýni undir eftirliti og það getur reynst sumum erfitt að gera eftir pöntun. Fischer lumar á lausn. „Mitt lífsráð fyrir alla íþróttamenn sem eru að hlusta: Ef þú getur ekki pissað, reyndu þá að kúka. Ef þú kúkar þarftu líka að pissa.“ Það voru fleiri skemmtilegar sögur í þættinum. Späth sagði meðal annars frá ferð í Europa-Park þar sem hæð hans reyndist honum til trafala. Späth er 2,01 metri á hæð og liðsfélagi hans Robert Timmermeister 2,02 metrar. Þeir þurftu báðir að yfirgefa eitt af tækjum skemmtigarðsins þar sem hámarkshæðin var 1,95 metri og ekki tókst að loka öryggisbúnaðinum yfir þá.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.