Óvissa ríkir um þátttöku Dags Leós Fannarssonar og Bjarna í Selvindi þegar Valur tekur á móti danska liðinu Mors-Thy í 1. umferð Evrópudeildarinnar annað kvöld. Leikurinn fer fram í Valsheimilinu og hefst klukkan 18:45. Dagur Leó og Bjarni voru báðir fjarri góðu gamni þegar Valur tapaði gegn KA í síðustu umferð Olís-deildarinnar. Dagur Leó sneri sig illa á ökkla á æfingu Vals í síðustu viku á meðan Bjarni hefur verið að glíma við meiðsli aftan í læri. Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, segir í samtali við Handkastið að staðan á þeim verði metin eftir æfingu liðsins í kvöld. „Bjarni æfði aðeins í gær með liðinu og verður prófaður aftur í dag. Dagur Leó gat ekki æft í gær en við ætlum að prófa hann aftur í dag. Staðan á þeim verður tekin eftir æfingu kvöldsins. Það er ekki hægt að segja neitt til um það eins og staðan er,“ sagði Ágúst. Hann telur líkurnar á því að þeir geti tekið þátt í leiknum gegn Mors-Thy vera jafnar. „Ég myndi meta það þannig að það væri 50/50 að þeir verði með en það kemur í ljós í kvöld.“ Valsmenn þurfa þó að taka endanlega ákvörðun fljótlega enda þarf félagið að skila inn leikmannalista fyrir leikinn í hádeginu á morgun. Valur hefur því fram á kvöld til að meta stöðuna á þeim Degi Leó og Bjarna áður en kemur í ljós hvort þeir verði klárir í fyrsta leik liðsins í Evrópudeildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.