
Töluverður munur er á miðaverði á heimaleiki liðanna í Olís-deild karla en dýrast er fyrir fullorðinn einstakling að mæta á heimaleiki FH í Kaplakrika. Almennt miðaverð á heimaleiki FH er 3.000 krónur en hjá flestum félögum deildarinnar kostar miðinn 2.500 krónur. Stjarnan sker sig hins vegar úr en almennt miðaverð á heimaleiki liðsins í Hekluhöllinni er 2.000 krónur og því lægst í deildinni. Það kostar því 4.000 krónur fyrir tvo fullorðna að fara á heimaleik Stjörnunnar en börn fá frítt inn. Fjögurra manna fjölskylda, tveir fullorðnir og tvö börn, greiðir því samtals 4.000 krónur fyrir leikinn. Sama fjölskylda greiðir hins vegar 6.000 krónur fyrir heimaleik FH í Kaplakrika þar sem tveir fullorðnir greiða 3.000 krónur hvor. Valur sker sig einnig úr þegar miðaverð er skoðað. Almennt miðaverð á heimaleiki Vals er 2.500 krónur en félagið er það eina í Olís-deild karla sem rukkar börn á aldrinum 6-15 ára fyrir aðgang. Barnamiði kostar 500 krónur og því greiðir fjögurra manna fjölskylda, tveir fullorðnir og tvö börn, 6.000 krónur fyrir heimaleik Vals. Á móti kemur að Valur býður eldri borgurum og öryrkjum upp á lægra miðaverð en almennt gildir. Miði fyrir þá kostar 1.500 krónur. Hjá Haukum, Fram, ÍBV, Aftureldingu, Þór, KA, HK, Selfossi og Víkingi kostar almennt miðaverð 2.500 krónur og frítt virðist vera fyrir einstaklinga 16 ára og yngri. FH: 3.000 krónurValur eina félagið sem rukkar börn
Miðaverð á heimaleiki liðanna í Olís-deild karla
Haukar: 2.500 krónur
Fram: 2.500 krónur
ÍBV: 2.500 krónur
Afturelding: 2.500 krónur
Þór: 2.500 krónur
KA: 2.500 krónur
HK: 2.500 krónur
Selfoss: 2.500 krónur
Víkingur: 2.500 krónur
Valur: 2.500 krónur – 500 krónur fyrir börn 6-15 ára og 1.500 krónur fyrir eldri borgara og öryrkja
Stjarnan: 2.000 krónur

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.