Hefur einhver skorað fleiri mörk í upphafi tímabils í sögu efstu deildar?
Jón Gautur Fótó

Gunnar Róbertsson hefur farið á kostum í upphafi Olís-deildar karla þótt Íslandsmeistarar Vals hafi tapað tveimur af fyrstu fjórum leikjum sínum. Gunnar hefur skorað 55 mörk, eða tæplega 14 mörk að meðaltali í leik.

Markaskorun Gunnars kom til umræðu í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins.

„Ljósið í myrkrinu hjá Val er Gunnar Róbertsson. Ætli þetta sé besta byrjun í markaskorun á tímabili í sögu efstu deildar á Íslandi?“ spurði Ásgeir Jónsson.

„Það er þá helst Valdimar Fannar Þórsson sem gæti hafa skorað fleiri mörk en hann í upphafi tímabils, á sínum tíma,“ skaut Stymmi klippari inn í. Ásgeir bætti við að hann efaðist um að nokkur annar leikmaður hefði skorað svo mikið í upphafi tímabils.

Gunnar skoraði níu mörk gegn Selfossi í fyrstu umferð, 17 gegn Fram, 16 gegn HK og 13 gegn KA. Valur hefur alls skorað 145 mörk í þessum fjórum leikjum og Gunnar því gert 37,9% marka liðsins.

Frekar var rætt um leik Vals og KA og frammistöðu Gunnars Róbertssonar í nýjasta þætti Handkastsins.

Gunnar verður í eldlínunni i kvöld þegar Valur tekur á móti Mors Thy í 1.umferð Evrópudeildarinnar en leikurinn hefst klukkan 18:45 og fer fram í Valsheimilinu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top