Valur tók á móti danska liðinu Mors-Thy í fyrstu umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar í kvöld og unnu með ellefu marka mun, 39–28. Valur var með fjögurra marka forskot í hálfleik, 19–15, og jók muninn jafnt og þétt eftir hlé. Arnór Snær Óskarsson fór mikinn í liði Vals og skoraði tíu mörk og var markahæstur allra í leiknum. Gunnar Róbertsson kom næstur með átta mörk en Bjarni í Selvindi skoraði sex. Tjörvi Týr Gíslason og Allan Nordberg bættu svo við fjórum mörkum hvor. Hjá Mors-Thy voru Oliver Wosniak og Simon Skovhus markahæstir með sex mörk hvor. Frederik Kvistgaard Bak skoraði fjögur og Mads Peter Lønborg Poulsen þrjú. Valur hafði yfirhöndina frá upphafi og leiddi 19–15 í hálfleik. Í síðari hálfleik gekk allt upp hjá heimamönnum og munurinn jókst hratt áður en Valur landaði sannfærandi 39–28 sigri.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.