Varnar­leikurinn verður grunnurinn gegn Mors-Thy
Jón Gautur Fótó

Valur hefur leik í Evrópudeild karla í kvöld þegar danska liðið Mors-Thy kemur í heimsókn í N1-höllina. Flautað verður til leiks klukkan 18:45.

Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, segir spennuna vera farna að magnast innan leikmannahópsins fyrir fyrsta Evrópuleik tímabilsins.

„Spennan er hægt og rólega að magnast innan hópsins. Við byrjuðum að undirbúa okkur fyrir leikinn í gær með því að funda og æfa svo í framhaldinu. Við gerum slíkt hið sama í dag, skoðum þá betur á myndbandi en við erum með fínt efni af þeim,“ sagði Ágúst í samtali við Handkastið.

Ágúst ber mikla virðingu fyrir danska liðinu sem er vel mannað og bendir sérstaklega á nokkra leikmenn sem Valsmenn þurfa að hafa góðar gætur á.

„Það sem við höfum séð er að þeir eru mjög vel mannaðir, með norska landsliðsmanninn Barthold í vinstra horninu en hann er þeirra markahæsti leikmaður og svo mjög öfluga leikmenn á miðjunni og sterka bakverði.“

„Sérstaklega má nefna leikmenn á borð við, Jensen og Wosniak. Þeir eru góðir bæði einn á einn og svo skjóta þeir óhikað utan af velli. Svo eru þeir með litla og mjög snögga miðjumenn.“

Ágúst telur ljóst hvar grunnurinn að góðum úrslitum Vals í kvöld liggur.

„Varnarleikurinn hjá okkur verður grunnurinn að því að við getum gert góða hluti hér heima gegn þeim.“

Einhver óvissa hefur verið með þátttöku Bjarna í Selvindi og Dags Leós Fannarssonar. Þeir léku hvorugur með Val í tapinu gegn KA í síðustu umferð Olís-deildarinnar. Dagur Leó sneri sig illa á ökkla á æfingu í síðustu viku á meðan Bjarni hefur glímt við meiðsli á læri.

Ágúst vonast að lokum eftir góðum stuðningi úr stúkunni þegar Valsmenn hefja Evrópuævintýrið í kvöld.

„Vonandi fjölmennir fólk á völlinn. Við erum að fá frábært danskt lið hingað í heimsókn og umgjörðin í N1-höllinni verður fyrsta flokks. Það er því full ástæða til að mæta og styðja við bakið á strákunum sem ætla að selja sig dýrt,“ sagði Ágúst.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top