Sérfræðingurinn í Handkastinu sagðist hafa fengið upplýsingar um að svokallaður „krísufundur“ hefði verið haldinn hjá Val í aðdraganda leiks liðsins gegn KA í 4. umferð Olís-deildar karla. Málið kom til umræðu í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins þegar farið var yfir tap Vals gegn KA á heimavelli. Þar var meðal annars rætt um frammistöðu Valsmanna og að ákveðið andleysi hefði virst yfir liðinu. „Ég var búinn að heyra af því að það hafi verið krísufundur í Valsheimilinu í síðustu viku. Ég veit svo sem ekkert meira heldur en að það voru einhverjir leikmenn innan Vals sem eru sagðir hafa setið krísufund, hvort sem það var með þjálfaranum eða stjórninni. Ég hef ekki sjálfur setið svokallaða krísufundi,“ sagði Sérfræðingurinn. Hann tengdi umræðuna við það sem sást inni á vellinum gegn KA. „Þið voruð að lýsa andleysi og að leikmenn Vals virtust vera með þungar axlir í leiknum gegn KA, hægir að hlaupa til baka og þetta er svolítið einkenni þess þegar menn eru ekki gíraðir, þá er eitthvað í gangi.“ Ásgeir Jónsson, einn gesta þáttarins, benti á að ýmsar skýringar gætu verið á slíkum fundi og varaði við því að draga of miklar ályktanir án þess að vita hvað hefði farið þar fram. „Það getur verið alls konar og ómögulegt að setja sig inn í það þegar maður veit ekki forsendurnar en það gæti bæði hafa verið liðsfundur, með eða án þjálfara,“ sagði Ásgeir. Sérfræðingurinn benti þá á að Valur hefði skömmu áður tapað 47–40 fyrir Fram á heimavelli og því væri ekki endilega óeðlilegt að leikmenn og aðrir innan liðsins settust niður og ræddu stöðuna. „Þeir voru nýbúnir að tapa 47–40 á heimavelli gegn Fram. Kannski er bara eðlilegt að menn hittist og vilji fara yfir stöðuna. Mögulega er það einkenni metnaðarfullra liða. Valur eru ríkjandi Íslands- og deildarmeistarar og þá er ekkert óeðlilegt að menn taki fund eftir að hafa fengið 47 mörk á sig á heimavelli gegn Fram.“ Hann ítrekaði þó að hann hefði ekki frekari upplýsingar um hvað hefði farið fram á fundinum eða hverjir hefðu setið hann. „Ég veit ekkert um þennan fund. Eina sem ég veit er að ég fékk sent um einhvern krísufund í aðdraganda KA-leiksins.“ Stymmi klippari velti einnig upp öðrum möguleika í umræðunni. „Þetta gæti þess vegna hafa verið krísufundur milli þjálfara og stjórnar þar sem þjálfarinn var að segjast þurfa að fá leikmann,“ sagði Stymmi. Valur fær Þór í heimsókn í 5.umferð Olís-deildar karla á föstudaginn klukkan 18:30.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.