Gísli Rúnar til Stjörnunnar
Þorgils Garðar Gunnþórsson

Gísli Rúnar Jóhannsson hefur gengið til liðs við Stjörnuna frá Aftureldingu og mun því leika með Garðabæjarliðinu í Olís-deild karla.

Félagaskipti Gísla Rúnars frá Aftureldingu yfir í Stjörnuna hafa verið staðfest og er hann því orðinn löglegur með Stjörnunni. Gísli Rúnar verður þar af leiðandi gjaldgengur þegar Stjarnan mætir HK í 5. umferð Olís-deildar karla á sunnudaginn.

Stjarnan hefur fengið þrjú stig úr fyrstu fjórum leikjum sínum í deildinni og styrkir nú leikmannahópinn með komu Gísla Rúnars frá Aftureldingu.

Gísli Rúnar sem er uppalinn hjá Haukum en gekk í raðir Aftureldingar árið 2023. Hann lék á láni með Fjölni í Olís-deild karla tímabundið, tímabilið 2024/2025 en meiðsli hafa sett verulegt strik í reikninginn hjá honum undanfarin ár.

Í mars á þessu ári framlengdi hann samning sinn við Aftureldingu. Hann hafði á þeim tímapunkti leikið með Hvíta riddaranum í Grill 66-deildinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top