Akureyringurinn Heiðmar Örn Björgvinsson hefur vakið athygli í upphafi tímabils með Fjölni í Grill 66 deild karla. Heiðmar, sem er fæddur árið 2006, hefur leikið vel með Fjölni og skorað 27 mörk í 3 leikjum með en Fjölnis liðið hefur þó farið heldur hægt af stað í deildinni með aðeins 1 sigur í 3 leikjum. Heiðmar er uppalinn í KA en skipti svo yfir í Þór í 3. flokki. Hann gekk svo í raðir Fjölnis fyrir leiktímabilið í fyrra þegar hann flutti suður á bóginn vegna háskólanáms í Reykjavík. Við fengum Heiðmar aðeins til að segja okkur frá hinu og þessu. "Í yngri flokkum KA var ég partur af sterku 4. flokks liði hjá KA undir stjórn Stefáns Árna, sem er mjög góður þjálfari. Unnum við meðal annars Partille Cup." "Í 3. flokki lenti ég svo upp á kant við KA og ákvað því að skipta yfir í Þór. Þar leið mér mun betur og Þorvaldur Sigurðsson, þjálfari 3. flokks Þórs, á stóran part í mínum ferli. Ég flutti síðan suður vegna háskólanáms, en það spilaði líka inn í að mér fannst Þór ekki sjá nógu stórt hlutverk fyrir mig. Ég tók eina æfingu með Gróttu áður en Óli Mall hafði samband við mig varðandi Fjölni. Þar fann ég strax fyrir meiri áhuga" "Síðasta tímabil var mikil reynsla, sérstaklega umspilið. Ég fékk mikið traust og stórt hlutverk og er mjög þakklátur Gumma fyrir það. Þetta tímabil hefur farið helvíti illa af stað hjá okkur. Við eigum miklu meira inni og skuldum klárlega betri frammistöðu. Gunnar Valur og Viktor hafa komið mjög vel inn og æfingarnar gengið vel, þannig að nú þurfum við bara að sýna það í leikjunum" "Það er mjög góð stemning í hópnum og það var sérstaklega sterkt fyrir okkur að fá stuðboltann Guðmund Hlífar inn í hópinn. Markmiðið hjá mér er að standa mig vel og skila árangri fyrir liðið. Það væri mjög gaman að spila í deild þeirra bestu einhvern tímann, en fókusinn núna er bara á næsta leik og að við drullumst til að standa okkur" sagði Akureyringurinn Heiðmar Örn Björgvinsson að lokum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.