Valur hefur fengið á sig flest mörk í deildinni
Jens Kr Vang

Íslands- og deildarmeistarar Vals hafa fengið á sig 145 mörk í fyrstu fjórum umferðum Olís-deildar karla, eða 36,25 mörk að meðaltali í leik. HK hefur einnig fengið á sig 145 mörk og Fram kemur næst með 144.

Varnarleikur Vals var til umræðu í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins.

„Valur hefur fengið á sig flest mörk í deildinni. Það er ekki oft sem þú sérð Val hæst á þeim lista. Það að Valur sé búið að fá á sig 36,2 mörk eftir fyrstu fjóra leikina, mér finnst það ótrúlega mikið fyrir lið sem hefur verið þekkt fyrir að vera með fína vörn og góða markvörslu,“ sagði Stymmi klippari.

Valur situr í 8.sæti deildarinnar með fjögur stig. Valur vann Selfoss í 1.umferðinni 34-30 en tapaði síðan gegn Fram í 2.umferðinni 40-47. Næst hafði liðið betur gegn HK, 38-29 áður en kom að tapinu gegn KA, 33-39.

Valur tekur á móti Þór í Valsheimilinu í næstu umferð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top