Markvörðurinn Hilmar Már Ingason hefur verið lánaður til Fjölnis í Grill 66-deild karla frá nýliðum Víkings í Olís-deildinni. Hilmar Már var hluti af Víkingsliðinu sem vann Grill 66-deildina á síðustu leiktíð og tryggði sér þar með sæti í Olís-deildinni. Hann hefur á þessu tímabili einnig staðið vaktina í marki Víkings 2, sem leikur í Grill 66-deildinni. Varalið Víkings vann sér inn þátttökurétt í deildinni eftir góða frammistöðu í 2. deildinni á síðustu leiktíð. Hilmar Már er uppalinn hjá Val en mun nú ganga til liðs við Fjölni á láni og styrkja markvarðastöðu Grafarvogsliðsins. Fjölnismenn hafa átt erfitt uppdráttar í upphafi tímabilsins og er Hilmari ætlað að hjálpa liðinu í baráttunni í Grill 66-deildinni. Hilmar Már gæti leikið sinn fyrsta leik með Fjölni í kvöld þegar Haukar 2 kemur í heimsókn í Egilshöllina. Hefst leikurinn klukkan 19:00.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.