Erlingur Richardsson tók við þjálfun þýska handknattleiksliðsins GWD Minden í vikunni og hefur skrifað undir samning út tímabilið við félagið. Þetta var tilkynnt á mánudagsmorgun en í tilkynningunni frá Minden var forráðamönnum ÍBV þakkað fyrir gott samstarf og greiða afgreiðslu þjálfaraskiptanna. Erlingur segir ákvörðunina hafa borið brátt að en hann sé afar spenntur fyrir nýja verkefninu. „Ég er mjög ánægður og hlakka gríðarlega til að koma til GWD Minden. Þetta tækifæri kom mjög óvænt og allt gerðist mjög hratt. Í íþróttum verður maður stundum að vera tilbúinn að taka skjótar ákvarðanir þegar rétta tækifærið gefst og fyrir mig var þetta einmitt slíkt augnablik,“ sagði Erlingur við heimasíðu Minden. Hann þekkir þýskan handbolta vel eftir fyrri störf sín í Bundesligunni og hefur einnig fylgst náið með þýsku B-deildinni þar sem sonur hans, Elmar Erlingsson, leikur með Nordhorn-Lingen. „GWD Minden er félag með mikla hefð, sterka handboltamenningu og ástríðufulla stuðningsmenn. Ég þekki þýskan handbolta mjög vel frá fyrri árum mínum í Bundesligunni. Ég hef einnig fylgst vel með B-deildinni, ekki síst vegna sonar míns sem leikur með Nordhorn-Lingen. Ég hlakka mikið til að vera aftur í Þýskalandi og takast á við þessa nýju áskorun.“ Erlingur ætlar að hefjast strax handa og segir fyrstu skrefin verða að kynnast leikmönnum og starfsfólki félagsins. „Við höfum engan tíma til að missa. Mitt fyrsta forgangsverkefni er að kynnast leikmönnunum og starfsfólkinu, átta mig sem fyrst á liðinu og hefja vinnuna saman. Ég hef mikla trú á vinnusemi, skýrum samskiptum og því að móta lið sem berst hvert fyrir annað á hverjum degi.“ Erlingur er nú þegar mættur til Þýskalands og stýrði sinni fyrstu æfingu með félaginu á þriðjudaginn. Minden féll úr þýsku Bundesligunni á síðustu leiktíð á markatölu. Liðið er einungis með þrjú stig eftir fyrstu fimm leikina í þýsku B-deildinni það sem af er tímabilinu. Fyrsti leikur Erlings með Minden er á heimavelli á sunnudaginn gegn Dessauer.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.