Telur leikmenn ÍBV upplifa sig svikna eftir brotthvarf Erlings
Sævar Jónasson

Brotthvarf Erlings Richardssonar frá ÍBV var til umræðu í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins en Erlingur hætti óvænt með liðið á dögunum og tók við þýska B-deildarliðinu GWD Minden.

ÍBV lék sinn fyrsta leik eftir brotthvarf Erlings í gær þegar liðið sótti KA heim í 5. umferð Olís-deildar karla. Eyjamenn töpuðu sannfærandi og staða liðsins í upphafi tímabils var meðal þess sem rætt var í þættinum.

Sérstaklega var velt upp stöðu Magnúsar Dags Jónatanssonar, sem gekk nýverið í raðir ÍBV frá KA. Spurt var hvort Magnús Dagur hefði tekið sömu ákvörðun ef hann hefði vitað að Erlingur yrði farinn frá félaginu aðeins nokkrum dögum síðar.

„Það gerast ótrúlegir hlutir þegar við erum í miðri upptöku í síðasta þætti og við fáum veður af því að Erlingur Richardsson væri búinn að flýja Eyjuna og búinn að taka við B-deildarliði Minden í Þýskalandi,“ sagði Sérfræðingurinn.

Hann benti á að fleiri leikmenn hefðu komið til ÍBV að undanförnu þar sem tengsl við Erling hefðu mögulega haft áhrif. Atli Steinn kom frá Gróttu og tveir bandarískir leikmenn gengu nýlega til liðs við félagið. Vilmar Þór Bjarnason, framkvæmdastjóri ÍBV, hafði áður sagt að koma Bandaríkjamannanna hefði orðið að veruleika í gegnum tengsl Erlings við þjálfara bandaríska landsliðsins.

,,Er þetta ekki steikt að Erlingur sé síðan bara farinn?“ spurði Sérfræðingurinn.

Einar Ingi Hrafnsson taldi líklegt að einhverjir innan leikmannahópsins væru ósáttir við hvernig málin þróuðust.

„Það eru pottþétt einhverjir menn þarna sem þú nefnir sem telja sig hafa verið svikna. Erlingur er frábær þjálfari og hugarfarslega er hann góður í kennslunni fyrir þessa ungu leikmenn.“

Einar Ingi taldi jafnframt líklegt að Erlingur hefði sjálfur átt stóran þátt í því að sannfæra Magnús Dag um að ganga til liðs við ÍBV.

„Einhver hefur selt Magnúsi Degi að fara til Eyja og mér finnst það líklegt að það hafi verið Erlingur. Mér finnst það ólíklegt að einhver stjórnarmaður hafi verið í þeim samræðum. Pabbi Magnúsar, Jónatan Magnússon, hefur væntanlega líka verið inni í þessu. Magnús Dagur vildi breyta til og leið greinilega ekki vel í KA og vildi finna sér nýjan vettvang og endar í Vestmannaeyjum. Ég held að þeir feðgar séu svekktir og finnst eins og þeir séu smá sviknir,“ sagði Einar Ingi.

Einar Ingi sagðist þó skilja ákvörðun Erlings út frá hans eigin þjálfaraferli. Erlingur hefur áður starfað víða erlendis og tók nú við Minden út yfirstandandi tímabil.

„Ég skil Erling að vilja halda sér inni í þessum þjálfarahring. Það er liðinn ákveðinn tími síðan hann var að þjálfa í Evrópu og hann ætlar sér að vera í þessari umræðu í Evrópu og hann vill vera þar. Þetta var mögulega skref sem hann þurfti að taka til að halda sér þar inni.“

Hann benti þó á að tímasetningin væri óvenjuleg enda hefði Erlingur aðeins stýrt ÍBV í fjórum deildarleikjum áður en hann hélt til Þýskalands.

„Hann skilur við ÍBV á ekkert sérstökum stað.“

ÍBV greindi frá því þegar brotthvarf Erlings var tilkynnt að samkomulag hefði náðst við Minden um starfslok hans og að þýska félagið greiddi ÍBV fyrir að losa Erling undan samningi. Sérfræðingurinn gerði lítið úr því að um háa upphæð hefði verið að ræða.

„ÍBV segir það í fréttatilkynningunni en ég las þetta og hristi bara hausinn. Hver var upphæðin? 130 krónur eða 370 krónur?“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top