Óðinn með sjö mörk – Tumi öflugur í mikilvægum sigri á sínum gömlu félögum
Instagram HSG XeNTiS Bärnbach/Köflach)

Fjórir íslenskir handboltamenn voru í eldlínunni í Sviss, Austurríki og Þýskalandi í gær. Óðinn Þór Ríkharðsson og Tumi Steinn Rúnarsson voru sérstaklega atkvæðamiklir í sigrum sinna liða.

Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði sjö mörk fyrir Kadetten Schaffhausen sem vann öruggan 45–34 sigur á Handball Stäfa í svissnesku úrvalsdeildinni. Kadetten hefur farið vel af stað á tímabilinu og situr í öðru sæti deildarinnar með 15 stig eftir níu leiki. Liðið er aðeins einu stigi á eftir toppliði HC Kriens-Luzern.

Birgir Már Birgisson var einnig á ferðinni í Sviss og skoraði fjögur mörk fyrir GC Amicitia Zürich. Það dugði þó ekki til stiga að þessu sinni því Pfadi Winterthur hafði betur, 32–27. Zürich situr í níunda sæti deildarinnar með sex stig eftir átta leiki en Pfadi er í þriðja sæti.

Tumi Steinn Rúnarsson átti góðan leik fyrir Bärnbach/Köflach, gegn sínum gömlu félögum, í austurrísku úrvalsdeildinni og skoraði sex mörk þegar liðið vann sannfærandi 34–26 sigur á Alpla Hard.

Sigurinn var kærkominn fyrir Bärnbach/Köflach sem hafði aðeins unnið einn af fyrstu fjórum leikjum sínum fyrir leikinn. Liðið situr í tíunda sæti deildarinnar með tvö stig.

Í þýsku 2. Bundesligunni skoraði Elmar Erlingsson eitt mark fyrir Nordhorn-Lingen sem tapaði 37–32 gegn Hagen.

Nordhorn-Lingen er í sjötta sæti deildarinnar með sjö stig eftir fimm leiki. Hagen fór með sigrinum upp fyrir Nordhorn og er í fjórða sæti með átta stig.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top