Guðmundur Bragi Ástþórsson og Jón Ómar Gíslason þurftu að sætta sig við þriggja marka tap með Bregenz gegn HSG Holding Graz í austurrísku úrvalsdeildinni í gær. Graz vann leikinn 35–32 eftir að hafa lagt grunninn að sigrinum með frábærum fyrri hálfleik. Heimamenn voru sjö mörkum yfir þegar gengið var til búningsherbergja, 18–11. Bregenz átti fá svör framan af og Graz náði snemma góðu forskoti. Staðan var síðan 28–20 þegar um stundarfjórðungur var eftir og virtist sigur heimamanna þá vera í öruggri höfn. Bregenz neitaði þó að gefast upp og gerði leikinn spennandi á lokamínútunum. Gestirnir skoruðu þrjú mörk í röð undir lokin og minnkuðu muninn í 34–31 áður en Igor Zabic batt enda á áhlaupið. Lokatölur urðu 35–32. Guðmundur Bragi skoraði fjögur mörk fyrir Bregenz en Jón Ómar komst ekki á blað að þessu sinni. Mindaugas Dumcius var langmarkahæstur Bregenz með tólf mörk en Mladen Ujdur skoraði sex. Guðmundur hefur byrjað tímabilið af krafti með Bregenz og var fyrir leikinn næstmarkahæsti leikmaður austurrísku úrvalsdeildarinnar með 33 mörk í fyrstu fjórum umferðunum. Hann er því kominn með 37 mörk eftir fyrstu fimm leiki tímabilsins. Bregenz er með fimm stig eftir fyrstu fimm umferðirnar, tvo sigra, eitt jafntefli og tvö töp.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.