Forráðamenn MT Melsungen hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna óskar Johannes Golla um að yfirgefa félagið og snúa aftur til Flensburg. Félagið segist virða ósk Golla og fjölskyldu hans en leggur ríka áherslu á að félagaskipti séu hvorki sjálfgefin né sjálfsögð. Eins og Handkastið hefur fjallað um vill Johannes Golla yfirgefa MT Melsungen aðeins nokkrum mánuðum eftir að hann gekk til liðs við félagið frá SG Flensburg-Handewitt. Golla greindi sjálfur frá því á samfélagsmiðlum að fjölskylduaðstæður og andlegt álag lægju að baki ósk hans um að snúa aftur til Flensburg. Nú hafa Andreas Mohr og Jesper Larsson, stjórnendur MT Melsungen, sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins. Þeir taka sérstaklega fram að ástæður Golla fyrir því að vilja snúa aftur til Flensburg séu alfarið fjölskyldutengdar. „Eins og þegar hefur komið fram eru ástæður þess að Johannes Golla vill snúa aftur til Flensburg eingöngu fjölskyldutengdar og því liggur orsök þess andlega álags sem hann nefndi í færslu sinni á samfélagsmiðlum einnig eingöngu þar. Hann hefur ítrekað, og nú síðast nýlega, staðfest við okkur að MT hafi ekkert með þessa stöðu að gera,“ segir í yfirlýsingunni. Forráðamenn Melsungen viðurkenna að ósk Golla hafi komið þeim í opna skjöldu enda hafi félagið gert langtímaáætlanir með fyrirliðann innanborðs. „Auðvitað snertir niðurstaðan okkur núna, því þessi ósk um félagaskipti hefur áhrif á langtímaáætlanir okkar á öllum sviðum. Við erum og vorum undrandi á þessari þróun og deilum því vonbrigðum styrktaraðila, stuðningsmanna og starfsfólks.“ Melsungen segist nú þurfa að takast á við stöðuna en um leið gæta hagsmuna félagsins. Harðasti hluti yfirlýsingarinnar snýr að samningi Golla við félagið. Forráðamenn Melsungen leggja áherslu á að leikmenn geti ekki einfaldlega gengið frá gildandi samningum þegar aðstæður breytast. „Það er mikilvægt fyrir okkur að leggja áherslu á að samningar verða almennt að vera virtir og uppfylltir, því annars eru þeir ekki pappírsins virði. Allt annað myndi senda hræðileg skilaboð fyrir handboltann í heild sinni, sérstaklega þar sem á undanförnum árum hefur mátt greina þróun í ranga átt í sambærilegum málum.“ Melsungen lokar þó ekki dyrunum á viðræður um mögulega lausn. „Við virðum ósk Johannes Golla og fjölskyldu hans og erum tilbúnir til viðræðna með sjálfbæra og farsæla framtíðarþróun MT í huga. Við erum tilbúnir að finna niðurstöðu í málinu – en það gerist hvorki sjálfkrafa né er það sjálfsagður hlutur.“ Yfirlýsingin gefur því skýrt til kynna að Melsungen sé tilbúið að ræða brottför Golla en félagið ætli sér ekki að hleypa þýska landsliðsfyrirliðanum frá félaginu án þess að eigin hagsmunir séu tryggðir.Kom félaginu á óvart

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.