Draumur allra að fá svona lið á heimavöll
J.L.Long

„Þessir leikir eru skemmtilegustu leikirnir til að taka þátt í,“ segir Jón Þórarinn Þorsteinsson, markvörður FH, en Hafnarfjarðarliðið tekur á móti franska stórliðinu Limoges í Evrópudeildinni í Kaplakrika í kvöld.

FH hóf leik í Evrópudeildinni í síðustu viku þegar liðið sótti Bidasoa Irun heim til Spánar. FH-ingar stóðu vel í sterku spænsku liði en þurftu að sætta sig við tveggja marka tap.

Nú er komið að fyrsta heimaleik FH í keppninni og mótherjinn er franska liðið Limoges, sem vann eins marks sigur á Maritimo frá Portúgal í fyrstu umferð.

„Tilhlökkunin er mikil fyrir fyrsta leiknum okkar heima í Evrópudeildinni. Við fengum fyrsta leikinn okkar úti á móti Bidasoa Irun og mér finnst það hafa hjálpað okkur að kynnast umhverfinu betur og fyrir marga af okkur að upplifa þetta í fyrsta skipti,“ sagði Jón Þórarinn í samtali við Handkastið.

„Við erum tilbúnir að takast á við Limoges og erum allir spenntir að fá að sýna okkur á okkar heimavelli.“

Býst við hröðum og skemmtilegum leik

Jón Þórarinn, sem er uppalinn á Selfossi og leikur nú sitt annað tímabil með FH, gerir sér grein fyrir því að verkefnið verður krefjandi.

„Það má búast við hörkuleik á milli tveggja góðra liða. Þeir eru með sterka leikmenn á báðum endum vallarins og við þurfum að vera tilbúnir að taka á móti öllu sem þeir koma með. Ég býst við hröðum og skemmtilegum leik sem allir áhorfendur munu hafa gaman af.“

Franska liðið býr yfir miklum líkamlegum styrk en Jón Þórarinn telur FH eiga vopn til að svara fyrir sig.

„Þeir eru líkamlega sterkir og hafa góða leikmenn í hverri stöðu, eins og við. Þeir spila hratt í uppstilltum leik og eru fljótir að koma sér í góð færi. Þeir eru með hávaxnar skyttur og hraða og flinka hornamenn þannig að við þurfum að vera tilbúnir að taka hart á þeim og sýna þeim hvað í okkur býr.“

FH-ingar tryggðu sér sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í haust og Jón Þórarinn segir þátttökuna gefa leikmönnum liðsins mikið.

„Það gefur okkur mjög mikið að fá að sýna okkur í Evrópu og styrkir okkur ekki bara sem hóp heldur líka sem einstaklinga og leikmenn.“

„Þessir leikir eru skemmtilegustu leikirnir til að taka þátt í. Að spila á móti liðum frá öðrum löndum er eitthvað sem fólk dreymir um í boltanum og að fá svona lið á sinn heimavöll, fyrir framan sína áhorfendur, er draumur allra.“

Jón Þórarinn segir muninn á Evrópuleikjunum og leikjunum hér heima töluverðan.

„Evrópudeildin er með stærri umgjörð en hérna heima og öllu tjaldað til í þessum leikjum. Leikurinn er hraðari og það er alltaf refsað fyrir lítil mistök.“

Markvörðurinn vonast að lokum eftir góðum stuðningi úr stúkunni í Kaplakrika.

„Ég vil sjá sem flesta handboltaunnendur mæta á leikinn og hvetja okkur áfram.“

FH og Limoges eigast við í Kaplakrika í kvöld og hefst leikurinn klukkan 18:45. Klukkan 16:45 í dag leikur Valur gegn Slovan í Slóveníu en báðir leikirnir eru sýndir í beinni á Livey.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top