Mér hefur verið tekið mjög vel af öllum innan KA

Hægri hornamaðurinn Andri Freyr Friðriksson er búinn að vera á láni hjá KA frá Aftureldingu í rúman mánuð.

Andri Freyr sem er fæddur árið 2007, hefur komist nokkuð vel frá sínu í fyrstu leikjum tímabilsins með KA. Hefur hann skorað 11 mörk í 5 leikjum úr 15 skotum.

Andri Freyr byrjaði frekar seint að æfa handbolta en hann var 14 ára gamall þegar hann mætti á sína fyrstu æfingu. Hann var áður í körfubolta en eftir fyrstu æfinguna í handbolta var ekki aftur snúið.

Við heyrðum í Andra Frey og fengum að vita hvað kom til að hann endaði á láni hjá KA, veruna fyrir norðan og fleira til.

"Aðdragandinn af þessu var í raun mjög stuttur. Hrannar Guðmunds talaði við mig fyrst og sagði að KA hefði haft samband þar sem að þeim vantaði leikmann vegna meiðslanna hjá Giorgi. Eftir það var ég í samtali við bæði Andra Snæ og Jón Heiðar formann í 3-4 daga og flutti síðan á Akureyri viku eftir að Hrannar talaði fyrst við mig. Ég átti líka samtöl við bæði Stebba Árna og Árna Braga sem sögðu báðir að ég ætti að stökkva á þetta tækifæri þar sem þetta myndi hjálpa mér mikið að öðlast reynslu í efstu deild"

"Fyrsti mánuðurinn hérna fyrir norðan hefur gengið mjög vel, mér hefur verið tekið mjög vel af öllum innan KA og mér líst bara mjög vel á allt hérna. Það hefur verið virkilega gaman að spila fyrir KA og mig hlakkar bara mikið til að takast á við það sem er framundan hjá liðinu"

"Það verður mjög gaman að spila á móti Aftureldingu í KA heimilinu þann 22. okt og eins og ég skil þetta þá er sem betur fer ekkert þannig ákvæði í lánssamningnum að ég megi ekki spila þann leik. Lánssamningurinn gildir fram að jólum svo að öllu óbreyttu flyt ég aftur suður þegar deildin fer í jólafrí. En ég er klárlega opinn fyrir því að vera áfram á Akureyri ef að KA og Aftureldingu komast að samkomulagi um það enda líður mér mjög vel í KA og að búa hér á Akureyri" sagði þessi lunkni og efnilegi hornamaður að lokum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top