Fyrsti Evrópusigur Mors-Thy eftir áfallið á Íslandi
Baldur Þorgilsson

Danska liðið Mors-Thy vann sögulegan sigur í gær þegar það lagði ungverska liðið Tatabanya, 35–33, á heimavelli í annarri umferð Evrópudeildarinnar.

Þetta var fyrsti sigur félagsins í riðlakeppni í Evrópukeppni, að því er handboltasérfræðingurinn Bent Nyegaard greinir frá hjá TV 2 Sport.

Mors-Thy tapaði fyrir Val á Hlíðarenda í fyrstu umferð með 13 markamun en náði sér á strik gegn Tatabanya og er nú með tvö stig líkt og Valur. Ungverska liðið er enn án stiga og heimsækir Val í næstu umferð.

Anton Houe skoraði sjö mörk fyrir Mors-Thy, Simon Skovhus bætti við sex og Mads Peter Lønborg skoraði fimm.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top