16-liða úrslit Powerade-bikars karla hefjast í kvöld með tveimur leikjum. HK tekur á móti Aftureldingu í Kórnum klukkan 19:15 og ríkjandi bikarmeistarar Hauka fá Stjörnuna í heimsókn í Kuehne+Nagel-höllina klukkan 19:30. Leikur Hauka og Stjörnunnar verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV. Fimm leikir fara síðan fram annað kvöld. Þar verður viðureign FH og Fram í Kaplakrika einnig sýnd í beinni útsendingu á RÚV, en flautað verður til leiks klukkan 19:30. Valur heimsækir Selfoss, KA sækir Víking heim og ÍBV mætir ÍR í Skógarseli. Hvíti riddarinn fær síðan Gróttu í heimsókn í Grill66-deildarslag. Leikur ÍBV 2 og Þórs fer síðan fram laugardaginn 17.október. Í kvöld, fimmtudag:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.