HK freistar þess að enda tæplega tólf ára bið
Jón Gautur Foto

HK tekur á móti Aftureldingu í Kórnum klukkan 19:15 í kvöld í fyrsta leik 16-liða úrslita Powerade-bikars karla. Leikurinn verður sýndur í Handboltapassanum.

HK-ingum hefur gengið erfiðlega að vinna Aftureldingu en tólf ár er síðan HK vann Aftureldingu síðast í keppnisleik. Sá sigur kom, 23. október árið 2014. HK vann þá þriggja marka sigur að Varmá, 25–22, í Olís-deildinni. Tæplega tólf ár eru því liðin frá þeim sigri.

Liðin hafa mæst 14 sinnum síðan án þess að HK hafi fagnað sigri. Þar eru ellefu deildarleikir og þrír bikarleikir.

Liðin hafa raunar mæst í 16-liða úrslitum bikarsins þrjú af síðustu fjórum tímabilum og Afturelding haft betur í öll skiptin. Mesta dramatíkin var í desember 2022 þegar grípa þurfti til vítakastkeppni eftir að staðan var jöfn, 30–30, að loknum venjulegum leiktíma og 39–39 eftir framlengingu. Mosfellingar höfðu að lokum betur, 44–43.

Tveir leikir fara fram í 16-liða úrslitunum í kvöld. Auk viðureignar HK og Aftureldingar taka bikarmeistarar Hauka á móti Stjörnunni klukkan 19:30.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top