Segir Stjörnuna hafa saknað Dags Sverris gríðarlega mikið
Sævar Jónasson

Óvissa ríkir um þátttöku Dags Sverris Kristjánssonar þegar Stjarnan heimsækir bikarmeistara Hauka í 16-liða úrslitum Powerade-bikars karla í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og verður sýndur í beinni á RÚV.

Dagur Sverrir meiddist gegn Fram og lék ekki með Stjörnunni í tapinu gegn HK í síðustu umferð Olís-deildarinnar. Fjarvera hans var til umræðu í síðasta þætti Handkastsins.

„Stjarnan saknaði Dags Sverris gríðarlega mikið, sérstaklega varnarlega. Í seinni hálfleik var Tandri að rifja upp gamla takta með HK á sínum tíma og var að spila í hægri skyttunni. Dagur Sverrir meiddist í leiknum gegn Fram og það hamlaði sóknarleik Stjörnunnar gríðarlega en ég er ánægður með innkomu Matthíasar Dags,“ sagði Stymmi klippari.

Arnar Daði Arnarsson taldi þó áhrif fjarverunnar hafa verið meiri á varnarleik Stjörnunnar. Matthías Dagur skoraði fimm mörk úr sex skotum en að mati Arnars Daða náði hann ekki að fylgja góðum sóknarleik eftir í vörninni.

„Áhrifin voru meiri varnarlega. Matti stóð sig vel sóknarlega en gat ekki spilað vörn fyrir sitt litla líf. Hann núllaði í raun það góða sem hann gerði sóknarlega í næstu vörn. Ég held að það sé ástæðan fyrir því að Tandri neyddist til að spila hægra megin. Þetta hamlaði Stjörnunni meira varnarlega enda skoraði Matthías fimm mörk úr sex skotum og var öflugur,“ sagði Arnar Daði.

Stymmi bætti við að þetta hefði sennilega verið besti leikur Matthíasar fyrir meistaraflokk Stjörnunnar.

Stjarnan á erfitt verkefni fyrir höndum í kvöld. Haukar eru á toppi Olís-deildarinnar með fullt hús stiga en Garðbæingar eru í tíunda sæti með þrjú stig. 16-liða úrslitin hefjast með tveimur leikjum í kvöld. Auk viðureignar Hauka og Stjörnunnar mætast HK og Afturelding í Kórnum klukkan 19:15.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top