Skanderborg AGF vann sinn fyrsta sigur í Meistaradeild Evrópu í sögu félagsins þegar liðið lagði franska stórliðið Montpellier að velli, 36–32, í gærkvöldi á heimavelli. Bent Nyegaard, handboltasérfræðingur TV 2 SPORT, var afar hrifinn af frammistöðu danska liðsins og sagði sigurinn gríðarlega stóran fyrir félagið. „Þetta er magnað! Þetta er gegn Montpellier sem hefur verið stórveldi í evrópskum handbolta í mörg ár. Þetta eru gríðarleg úrslit fyrir Skanderborg AGF,“ sagði Nyegaard við TV 2 SPORT. Hann sagði leikinn ekki hafa verið fallegan á að horfa en baráttan og leikskilningurinn hefðu skipt sköpum. „Það var mikið hjarta í þessu og dönsk kænska á réttum augnablikum.“ Kristján Örn Kristjánsson, Donni skoraði fimm mörk fyrir danska liðið í leiknum og gaf auk þess fimm stoðsendingar. Skanderborg er með þrjú stig í 2.sæti riðilsins en liðið hafði gert jafntefli við Dinamo Bucuresti. Barcelona er á toppi riðilsins með fullt hús stiga. Þrjár umferðir eru eftir í riðlinum en tvö efstu liðin fara áfram.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.