Við tókum þetta á gleðinni
Jón Gautur Fótó

Haukar tryggðu sér sæti í 8-liða úrslitum Powerade-bikars karla í gærkvöldi með sannfærandi ellefu marka sigri á Stjörnunni, 35-24, á Ásvöllum. Haukarnir lögðu grunninn að sigrinum með frábærum fyrri hálfleik þar sem þeir leiddu með ellefu mörkum, 19-8.

Haukar höfðu mikla yfirburði í leiknum og náðu mest fjórtán marka forystu áður en yfir lauk.

Össur Haraldsson og Skarphéðinn Ívar Einarsson, leikmenn Hauka, voru að vonum ánægðir með frammistöðu liðsins þegar þeir ræddu við samfélagsmiðla félagsins eftir leik.

„Þetta var flottur leikur og við vorum frábærir í 60 mínútur og komum okkur örugglega áfram í bikarnum. Það var líka frábær frammistaða í stúkunni og gaman að sjá svona marga í stúkunni,“ sagði Össur Haraldsson sem skoraði fjögur mörk í leiknum.

Skarphéðinn Ívar tók undir orð liðsfélaga síns og hrósaði liðsheildinni en hann skoraði tvö mörk í sigrinum.

„Það var frábær stemning í liðinu og margir að leggja í púkkið. Það er nákvæmlega svona sem við viljum mæta í alla leiki,“ sagði Skarphéðinn.

Össur átti síðan lokaorðin og lýsti því í stuttu máli hvernig Haukarnir nálguðust verkefnið.

„Við tókum þetta á gleðinni,“ bætti Össur við.

Haukar og Afturelding eru fyrstu tvö liðin til að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum Powerade-bikarsins en 16-liða úrslitin halda áfram í kvöld með fimm leikjum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top