Þýski handknattleiksmaðurinn Fabian Wiede er farinn að sjá fyrir endann á langri fjarveru vegna meiðsla en tæpt ár er liðið síðan hann sleit krossband í hné í leik með Füchse Berlin. Wiede, sem er 32 ára gamall, meiddist í leik gegn ungverska stórliðinu Veszprém í Meistaradeild Evrópu í október á síðasta ári og hefur verið frá keppni síðan. Nicolej Krickau, þjálfari Füchse Berlin, greindi frá því á blaðamannafundi að Wiede væri farinn að taka aukinn þátt í æfingum liðsins og nálgaðist endurkomu. „Wiede er hægt og rólega að taka meiri þátt í æfingum. Ég held að það sé ekki langt í þetta. Við færumst nær og nær,“ sagði Krickau samkvæmt handball-world. Wiede hefur meðal annars æft með samstarfsfélagi Füchse Berlin, VfL Potsdam, til að byggja sig upp fyrir endurkomuna. Krickau segir að niðurstöður úr styrktar- og þolæfingum leikmannsins séu mjög jákvæðar en hann sé þó ekki tilbúinn í fulla leikæfingu. „Hann fer ekki enn af fullum krafti í návígin og getur heldur ekki framkvæmt stökkskotið sitt að fullu,“ sagði Krickau.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.