Sveinn Jóhannsson og félagar hans í Chambéry töpuðu 32-37 gegn Nîmes á heimavelli í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Chambéry situr í 14. sæti deildarinnar með sex stig eftir tíu leiki en einhverjum leikjum tíundu umferðar er enn ólokið. Chambéry byrjaði leikinn betur og komst í 7-6 en gestirnir náðu yfirhöndinni og leiddu 15-16 í hálfleik. Nîmes náði fjögurra marka forskoti í síðari hálfleik, 21-25, en heimamenn minnkuðu muninn í eitt mark, 28-29. Nîmes var hins vegar sterkara á lokakaflanum og vann að lokum með fimm mörkum. Sveinn Jóhannsson skoraði tvö mörk fyrir Chambéry. Emilien Peyronnet var markahæstur heimamanna með níu mörk en Gueric Vincent skoraði ellefu fyrir Nîmes. Nîmes er í þriðja sæti deildarinnar með 16 stig eftir tíu leiki.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.